blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

5.30.2005


Henni fannst verst a� vera ekki med eitthvad drasl til ad henda uti... Landvordurinn eg reyndi ad utskyra fyrir henni ad tad gerdi madur ekki.. hvad ef allir hentu drasli og framv... henni fannst eg bara boring ...  Posted by Hello


Birta med heimagerda veidistong a Hellu Posted by Hello


Gullni hringurinn var tekin a laugardaginn Posted by Hello

5.25.2005

Ogvodafone sökkar

Í mörg ár hef eg greitt síman minn með kretitkortinu.. einstaklega þægilegt og ekkert ves. Sé það alltaf á korta útskriftini hver upphæðin er og þar af leiðandi hefur það þróast þannig með árunum að eg hef ekkert sérstaklega verið að opna sjálft umslagið frá Ogvodafone. Þar sem eg á ekki heimasíma þá er notkunin all mikil og eg hef ferðast mikið erlendis síðustu ár og alltaf með trausta vinin í vasanum þannig eg hef ekkert sérstaklega verið að kippa mér upp við það að reikninguinn sé hár eða jafnvel sé 2 skiptur eins og hann er buin að vera undanfarið ár. Svo núna um daginn fannst mér það all furðulegt að simin minnskuli vera rumlega 20 þúsund og eg ekki erlendis í síðasta mánuði né notaði hann meira en vanalega.. eitt símtal til usa og eitt til nýja sjalands.. en það er varla 20 þús kall!! þannig minns fór að tékka á þessu... Í ljós kemur hjá Ogvodafone að það sé annað númer skráð á kortið mitt.. einhver dama út í bæ!!! og og og min kæru.. ríka ég er buin að vera að borga hennar síma í eitt ár!!!! Sem sagt mitt kortanúmer skráð fyrir hennar síma!!!! Þetta er allt skoðað vel og vandlega og niðurstaðan er að þeir hjá Ogvodafone eru búnir að rukka mig um tæplega 90 þus kall of mikið!!!!!! OKEI! þetta er lagað og eg fæ þetta endurgreitt.. svo hringir dama í mig í gær frá þessu fyrirtæki.. biðst velvirðingar fyrir hönd Ogvodafone fyrir að hafa rukkað mig um 90 þús kall of mikið og segist ætla að senda mér gjafabréf á Friday's :-/(Fitu Búllu bæjarinns) og í bío (laugarásbío.. versta bíoið!) .. svo segir daman bara .. allt í fina bæ !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ég á varla orð yfir þessu hvað mér finnst þetta púkalegt og ..... abba babb eitthvað! ég get lítið gert í þessu annað en fara á friday's og drekka bjór fyrir allt gjafabrefið.. meina bjór er bjór.. hvað þá á gjafaverði! .. og skipta svo um símafyrirtæki og leifa öðrum að græða á símanotkun minni..

5.23.2005

Upprisa Lýsuhóls-stemningunar

Fór á snilldar tónleika á föstudaginn á nasa! Mugison er svo mikill snillingur.. Ég var ekkert smá hrifin af atr þar sem hann er með kærestu sína á myndbandi...varpar myndbandinu á gitarinn sinn.. meðan þau syngja saman.. magnað!! Ástandið á mér í dag= Ég get ekki sagt að ég sé buin að jafna mig! Skarta alveg mínu ljótasta í dag vegna drykkju og láta. Tilefnið var að það eru ofsalega mörg ár síðan við kláruðum Grunnskólann í Ólafsvík.. Hvernig er hægt að halda uppá það? Taka upp fyrri hætti og drekka frá okkur allt vit? Já það var það sem við gerðum. Fórum til Hjálmars til Grindavíkur. Þar á hann veitingahús sem heitir Salthúsið.. rosalega flottur staður..brilljant matur .. frábært hreinlega. Braga er buin að setja inn myndir... Skrautlegt lið!!
En þetta var bara gaman og rosa gaman að hitta allt gengið sem maður sér svo sjaldan.


flottar Posted by Hello


Salthúsið Posted by Hello

5.13.2005

Hamsturs-skíta-flipp

Ég er farin að borga barninu mínu fyrir að snyrta í kringum sig! Það er settur listi á ísskápin og verkefni fyrir hvern dag. Samningurinn hljóðar uppá að hún fái 100 kr á viku sem fastan vasapening og svo deilast 200 kr til viðbótar yfir 7 daga og svo útborgun á föstudögum eftir framtakssemi. Hún er buin að standa sig vel enda peningar í boði. Í gær þegar ég kom heim var hún ný búin að þrífa hamsturs búrið.. ekki það sé frásögu færandi nema fyrir það leyti að hún gerði það á eldhúsborðinu!!!! Sem þýddi eldhúsborðið og gólfið þar í kring var allt í hamsturs-skíta-sagi.. og líka stofuborðið þar sem hún var líka að horfa á sjónvarpið á meðan þessu stóð... uff.. þetta er ekki buið... þegar hún var búin að taka sagið og skítinn úr búrinu á eldhúsborðinu tók hún sig til og þreyf búrið svona rosa vel í baðkarinu!!!!! Ég fékk hamsturs-skíta-sýkla flipp á þessu uppátæki hennar. Dró fram sótthreynsandi og öll tiltæk áhöld til að þrífa þetta og rétti henni.....meðfylgjandi var svampur sem hún notaði til að þrífa skítin úr baðinu. Ekki það að hún gerði þetta vel og allt það.. nema eftir skrúbbið lagði hún hamsturs-skíta- svampinn svo snyrtilega á andlits þvottapokann minn á vaskinum!! uff.. ég stóð mig að þvi að byðja hana vinsamlega að hugsa.. þó það væri ekki nema smá skynsemi sem hún myndi leggja til... Henni fannst þetta bara vera tuð í mér og ranghvolfdi augunum. Ég skánaði greinilega ekki eftir þvi sem leið á kvöldið þvi ég fór fram á að hún færi með ruslið, gengi frá hreynu fötunum sínum inn í skáp og minnti hana á hvað hún ætti að gera í dag á verkefna listanum... Það endaði með þvi að hún pirraðist heiftarlega og bað mig um líf sitt til baka!!!! hahahaha.... drama?!

5.10.2005


Stór glæsilegur leik-sigur á sviði Álftamýraskóla.  Posted by Hello

5.09.2005

Því miður !!!!!

ég verð þvi miður að fresta innflutnings geiminu um einhvern tíma ... Það eru margir á faralds-fæti þessa helgi og of mikið að gera á öllum sviðum... Þannig við höldum bara áfram að byggja upp þessa gríðalegu spennu sem þessu fylgir og hlökkum meira til ... :)

5.06.2005

weekend... good yeh!

Mér finnst það bara mest ljómandi að það skuli að vera að koma helgi. Ætla að njóta hverrar mín. Byrja á þvi að fara að ná í dúndur stólanna sem eg var að fá og kaupa mér rauðvinsflösku.. aahh ljúft að vera lítill alki í sér :) Það eru stór og skemmtileg plön báða daganna :) JEIJJJJ

Drami og fjölgun

Það fjölgaðií fjölskyldunni í fyrradag. Við eignuðumst dverghamstur!! : Pínu litið kvikindi. Hún heitir víst Mína.. ég fékk engu um það ráðið! Mína hefur nóg að gera allan sólarhringinn! Hún er með hlaupahjól í búrinu sínu sem hún stigur ekki út ur milli 11 á kvöldin á 6 á morgnanna! Á milli lúra er hún svo að endurinnrétta húsið sitt... hún virðist hafa mjög óákveðin smekk og getur ekki alveg sætt sig við "lookið" sem hún hefur í dag.. greinilega ekki nægilega móðins... Þannig mikill tími fer í að flytja "rúmmið" á milli horna og hæða til að finna rétta fílinginn sennilega! Birta er að tapa sér af kæti.. að sjálfsögðu var þetta Besti dagur lífs hennar.. en það er kanski ekkert að marka þvi hún sagði að í dag væri versti dagur lífs hennar... vegna þess það er úti-leikfimi í dag.. þannig dramatíkin er eftirvill svoliðið mikil hjá henni þessi "árin"

5.04.2005

Hvað er að !!!!!!!!

....Nokkrum mín síðar var hringt frá skólanum þvi það hafði gleymst að kemba dýrinu í eitt skipti! Varð að ná í hana.. Fannst þetta vera bara formsatriði þar sem eg er hafði kempt hana deginum þar á undan og hef verið að fylgjast með henni undanfarið... en NEI !! ég fann eina!! :-< Fyrsta sem mér datt í hug var að raka hárið af henni og brenna sængurfötin en svo róast maður og gerir tileigandi ráðstafanir.. sem sagt þvottavélin mín var í essinu sínu í allan gærdag.. öllu hent út og litla sílið var sótthreynsað. Hugsið ykkur.. það eru foreldrar þarna úti sem hugsa ekkert um börnin sín.. börnin ganga um lúsug og engin gerir neitt!! Sem þýðir að þetta er orðið að plágu!!... ég meina hárið á krökkunum er bókstaflega lifandi.. iðar og þvílík vanlíðan fyrir aumingja krakkann! Hvað er að þessu fólki????? Þetta eru svo ógeðsleg kvikindi.. og svo klæjar manni í marga daga á eftir bara við tilhugsununa... maður verður svo sjúklega meðvitaður um hreyfingar á hverju hári á hausnum á sér að það er hreinlega klikkun ... Viðbjóður.. er ekki nægilega sterkt orð til að lýsa þessu...

5.03.2005

Serlega fagnaðarkennt

Það er ekki fyrr runnið af mér að ég er farin að plana næsta geim.. hlítur að vera sumarfílingurinn eða litli alkinn er að vakna til lífsins?
Innflutningspartyið í slottið .. jeijj
Þar næsta laugardag.. sem sagt 14 mai kl bara átta eða svo :)
Þetta verður serlega fagnaðarkennt og þú ert hjartanlega velkomin(n)
Það sem er helst á dagskrá þessa daganna er að eg er buin að dusta rykið af ritgerðinni minni og er að hefja dag 2 í að vinna í henni... ef til vill einungis 365 dagar eftir en þetta mjakast!
Búskapurinn er ljómandi og tilhugsunin ein við að eiga sitt eigið er einstaklega kætandi.

5.02.2005


huggulegt hjá okkur Posted by Hello


Skál fyrir guðdómlegum mat Posted by Hello

Kúbudinner og undarleg hegðun

Brilljant kúbu familiu dinner á laugardaginn. Maturinn var framandi og guðdómlegur að vanda. Komst að þvi að það er all margt sem vantar í buið þegar á að halda svona matarboð en auðvita reddaðist allt saman :) Brilljant mæting og rosalega gaman :) Birta var hjá mömmu þetta kvöld. Hún hringdi í mig morgunin eftir.. hún var pínu skrítin í röddinni... sem er ávísun á að hun hafi gert eitthvað af sér.. eftir smá spjall kom í ljós að hún hafi tekið sig til og klippt augnbrunirnar af sér!!!!! :- Hvað .afhverju.. . hver geriri það!!!!! Ég verð bara að segja eins og er þá lítur hún ansi undarlega út þessa daganna! Verð að ná mynd af þessu..